Reykjavík og nágrenni um 1800
Episode Ep 284 50 min 8s

Reykjavík og nágrenni um 1800

Við lok 18. aldar var ástand lands og þjóðar með versta móti en jafnframt var að hefjast margvíslegt umbótastarf. Embættismenn ræddu landsins gagn og nauðsynjar, skáldin kváðu kvæði og athyglin beindist ekki síst að Reykjavík. Var hinn nýi höfuðstaður framtíðin eða einskær "saurvilpa". Lesið er úr bók Þóris Óskarssonar, Svipum brotanna, ævisögu Bjarna Thorarensen.

Community discussion