#519 Helgi Hrafn Gunnarsson - Almenningur hefur ekki hundsvit á útlendingamálum
Episode 1 hr 32 min

#519 Helgi Hrafn Gunnarsson - Almenningur hefur ekki hundsvit á útlendingamálum

Þórarinn ræðir við Helga Hrafn Gunnarsson, gamla Píratann sem allir elska.

Farið er um víðan völl en í stuttu máli rætt um þrjá hluti, uppgang fasisma, útlendingamál og vændi.
Helgi er gagnrýninn á slaufunarmenningu og setur það í samhengi við frönsku byltinguna og hvaða félagslegu afleiðingar hlýst af múgæsingi. Spurt er hvaða áhrif það hefði haft ef samfélagsmiðlar hefðu verið til á tímum frönsku byltingarinnar.

Í kjölfarið að því er rætt um Guðbrand Einarsson og hvort að vændi eigi að vera lögleitt.
Að lokum er rætt um breytta umræðu í útlendingamál og stefnubreytingu Samfylkingarinnar. Helgi telur almenning ekki hafa hundsvit á útlendingamálum þó svo að vert sé að ræða menningarmál í þeim efnum.

- Hefði Guðbrandur Einarsson átt að segja af sér?
- Afhverju hefur almenningur ekki hundsvit á útlendingamálum?
- Hvað hefði gerst ef samfélagsmiðlar hefðu verið til á tímum frönsku byltingarinnar?

Community discussion