Podcast//Frjálsar hendur
Frjálsar hendur

Frjálsar hendur

Informazioni

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
162
Episodi
IS
Lingua
0
Iscritti
0
Ascolti
Episodi25
Ódysseifskviða 6

Ódysseifskviða 6

Dec 7, 2025·

Áfram heldur umsjónarmaður að lesa úr þýðingu sinni á Ódysseifskviðu Hómers. Eftir að fylgst hefur verið með Telemakkusi Ódysseifssyni í fyrstu köflum kviðunnar, þá kemur nú Ódysseifur loksins til sögunnar í hinum...

Árni Óla, einsetumaður og refaveiðar

Árni Óla, einsetumaður og refaveiðar

Nov 30, 2025·

Árni Óla var einn kunnasti og dugmesti blaðamaður landsins á fyrri hluta 20. aldar og var óþreytandi að kynna land og lýð fyrir lesendum Morgunblaðsins. Í þessum þætti verður gluggað í minningabók Árna þar sem hann...

Ingimundur fiðla og Huldudrengurinn

Ingimundur fiðla og Huldudrengurinn

Nov 23, 2025·

Ingimundur Sveinsson ólst upp í Vestur-Skaftafellssýslu á ofanverðri 19. öld. Hann varð tónlistarmaður og jafnan kallaður Ingimundur fiðla, því fiðlan var hans tryggasti förunautur. Ekki batt Ingimundur bagga sína að...

Krópótkin fursti 1

Krópótkin fursti 1

Nov 16, 2025·

Á 19. öldinni veitti hinn svonefndi anarkismi, stjórnleysisstefnan, sósíalismanum lengi vel harða keppni sem helsta andspyrnuafl gegn kapítalisma og auðhyggju. Einn helsti anarkisti Evrópu var Rússinn Krópótkin fursti...

Tryggvi Jónsson, Árblik og aftanskin 2

Tryggvi Jónsson, Árblik og aftanskin 2

Nov 9, 2025·

Hér segir áfram af Tryggva Jónssyni og ævisögu hans, Árbliki og aftanskini. Hér segir aðallega frá því sem hendir Tryggva þegar hann hefur hrökklast til Ameríku og býr þar í áratugi, en snýr svo að lokum til Íslands...

Tryggvi Jónsson, Árblik og aftanskin 1

Tryggvi Jónsson, Árblik og aftanskin 1

Nov 2, 2025·

Tryggvi Jónsson fæddist í Borgarfirði á ofanverðri 19. öld og skrifaði seint á ævinni sjálfsævisöguna Árblik og aftanskin. Þá hafði Tryggvi verið búsettur í Ameríku í áratugi en flutti raunar til Íslands aftur undir...

Stefan Zweig og Veröld sem var 4

Stefan Zweig og Veröld sem var 4

Oct 26, 2025·

Enn er litið í æviminningar Stefans Zweigs, Veröld sem var, þar sem hann lýsir því á eftirminnilegan hátt hvernig það samfélag var samansett sem átti svo eftir að hrynja til grunna þegar fyrri heimsstyrjöldin braust út...

Stefan Zweig og Veröld sem var 3

Stefan Zweig og Veröld sem var 3

Oct 19, 2025·

Í þessum þriðja þætti sem umsjónarmaður tekur saman upp úr æviminningum Stefans Zweigs segir hann frá menningarlífinu í Vínarborg en menningarlífið var þar afar blómlegt, einkum fyrir borgarastéttina og yfirstéttirnar...

Stefan Zweig og Veröld sem var 2

Stefan Zweig og Veröld sem var 2

Oct 12, 2025·

Í þessum þætti les umsjónarmaður úr upphafsköflum bókarinnar Veröld sem var eftir Stefan Zweig (1881-1942). Jafnframt segir umsjónarmaður frá Austurrísk-ungverska keisaradæminu, en það var heimaland Zweigs og það ríki...

Stefan Zweig og Veröld sem var 1

Stefan Zweig og Veröld sem var 1

Oct 5, 2025·

Í þessum fyrsta þætti af nokkrum tekur umsjónarmaður saman og les kafla úr æviminningum og samfélagslýsingu austurríska rithöfundarins Stefans Zweigs. Sumarið 2025 var fluttur eins konar kynningarþáttur þar sem athyglin...

Kristín Sigfúsdóttir 3

Kristín Sigfúsdóttir 3

Sep 28, 2025·

Enn er litið í æviminningar Kristínar Sigfúsdóttur frá æskudögum hennar í Eyjafirði. Í þessum þætti beinist athygli einkum að ýmsum sveitungum Kristínar og ættingjum. Meðal annars dregur hún upp eftirminnilega mynd af...

Kristín Sigfúsdóttir 2

Kristín Sigfúsdóttir 2

Sep 21, 2025·

Kristín var Eyfirðingur, fæddist 1876 og varð á þriðja áratugnum einn allra vinsælasti rithöfundur þjóðarinnar. Í þætti fyrr á þessu ári var lesið úr æviminningum hennar þar sem hún sagði einkum frá afa mínum og ömmu...

Ódysseifskviða 5

Ódysseifskviða 5

Sep 14, 2025·

Hér segir frá fréttum sem Telemakkus fær af hinum týnda föður sínum í Spörtu, en jafnframt beinist athyglin aftur að Íþöku, þar sem Penelópa kona Ódysseifs verst hinum freku biðlum fimlega. Jafnframt fjallar...

Ódysseifskviða 4

Ódysseifskviða 4

Sep 7, 2025·

Nú er Telemakkus sonur Ódysseifs kominn til Spörtu í leit að fréttum af föður sínum og þar hittir hann fyrir konunginn Menelás og hina fögru Helenu konu hans við mikinn veisluglaum. Þau hafa margt að spjalla, en fær...

Örsögur Kafka og týnda brúðan

Örsögur Kafka og týnda brúðan

Aug 31, 2025·

Ástráður Eysteinsson og Eysteinn Þorvaldsson hafa öðrum betur kynnt Franz Kafka fyrir íslenskum lendum og hér er lesið úr nýlegri bók með örsögum ýmsum eftir Kafka. Jafnframt reynir umsjónarmaður að komast að því hvað...

Manngerðir Canettis 2

Manngerðir Canettis 2

Aug 24, 2025·

Nóbelsverðlaunahafinn Elias Canetti skrifaði stuttar og skemmtilegar lýsingar á margvíslegu mannfólki. Gunnar Harðarson þýddi þessar grínaktugu og þó hnífskörpu mannlýsingar fyrir 30 árum og hér eru lesnar ýmsar þeirra...

Ódysseifskviða 3

Ódysseifskviða 3

Aug 17, 2025·

Þar var komið sögu þegar umsjónarmaður lagði síðast frá sér Ódysseifskviðu að Telemakkus Ódysseifsson er lagður af stað í leit að föður sínum. Í þriðja þætti kviðunnar er hann kominn ásamt fylgdarmönnum sínum – og...

Thor Vilhjálmsson 2

Thor Vilhjálmsson 2

Aug 10, 2025·

Annar þáttur þar sem lesið er úr verkum Thors Vilhjálmssonar rithöfundar sem hefði orðið 100 ára um þessar mundir. Að þessum sinni er athyglinni beint að blaðaskrifum hans og lesið úr ferðafrásögnum hans frá Ítalíu á 7...

Thor Vilhjálmsson 1

Thor Vilhjálmsson 1

Aug 3, 2025·

Um þessar mundir er ein öld liðin frá fæðingu Thors Vllhjálmssonar rithöfundar. Af því tilefni les umsjónarmaður nokkra valda kafla úr skáldverkum Thors sem lýsa orðsnilld hans og innsæi. Í þessum þætti hafa orðið fyrir...

Ódysseifskviða 2

Ódysseifskviða 2

Jul 27, 2025·

Í apríl las umsjónarmaður fyrsta þáttinn af Ódysseifskviðu Hómers í tilefni af því að nú er verið að taka upp kvikmynd eftir kviðunni á Íslandi. Hér er komið að öðrum þætti kviðunnar þar sem segir frá því er sonur...

Stefan Zweig

Stefan Zweig

Jul 20, 2025·

Zweig (1881-1942) var einn frægasti og vinsælasti rithöfundur millistríðsáranna, frægur fyrir ævisögu sína Veröld sem var. Sumarið 1936 fór hann á rithöfundaþing í Argentínu og þar var Halldór Laxness líka einn...

Hendrik Ottósson 2

Hendrik Ottósson 2

Jul 13, 2025·

Áfram er haldið frá síðasta þætti að lesa úr æviminningum Hendriks Ottóssonar fréttamanns þar sem hann segir frá æskuminningum sínum í Reykjavík í byrjun 20. aldar. Hér segir af litríkum nágrönnum, kátum börnum og alls...

Hendrik Ottósson 1

Hendrik Ottósson 1

Jul 6, 2025·

Hendrik Ottósson var blaðamaður og fréttamaður við útvarpið, hann skrifaði frægar barnabækur um líf barna og unglinga í Reykjavík um og laust upp úr aldamótunum 1900 og hann var líka skeleggur pólitískur baráttumaður á...

Mannlíf í Aðalvík og Goðafossstrandið

Mannlíf í Aðalvík og Goðafossstrandið

Jun 29, 2025·

Gunnar Friðriksson starfaði lengi fyrir Slysavarnarfélag Íslands en hann skrifaði líka æskuminningar sínar frá Aðalvík á Hornströndum í byrjun 20. aldar. Þar segir frá fjölskyldu hans, nágrönnum og lífinu við hið ysta...

Tómas Sæmundsson: Ferð til Prag 2

Tómas Sæmundsson: Ferð til Prag 2

Jun 22, 2025·

Tómas Sæmundsson er enn í Prag, líkt og í síðasta þætti, en síðan segir áfram frá ferðalagi hans aftur til Þýskalands og loks til Austurríkis og Rómar. Kólera gengur ljósum logum um Evrópu svo stundum þarf Tómas að...

Potrebbe piacerti anche